Efni fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár var kynnt ríkisstjórninni í morgun. Venju samkvæmt hvílir mikil leynd yfir fjárlagafrumvarpinu.

Bjarni Benediktsson, efnahags- og fjármálaráðherra, mun kynna frumvarpið 1. október næstkomandi á blaðamannafundi. Sama dag mun því verða dreift á Alþingi.

Fjárlög hafa verið rekin með halla allt frá árinu 2008 og því má gera ráð fyrir því að framlög til ýmissa liða verði minnkuð á næsta ári.