Fulltrúar Samfylkingar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar í fjárlaganefnd sendu Einari K. Guðfinnssyni, forseta Alþingis, bréf í dag með kröfu um að hann beiti sér fyrir að fjárlaganefnd fái aðgang að gögnum sem hagræðingarhópur ríkisstjórnarinnar hefur notast við í vinnu sinni. Jafnframt er óskað eftir því að forseti útbúi verkferla sem tryggi að að þingnefndir geti óhindrað nýtt rétt sinn til að óska eftir upplýsingum frá framkvæmdarvaldinu.

Áður hafði fjárlaganefnd óskað eftir aðgangi að tillögum hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar, fundargerðum, afrita af greinargerðum, gestakomum skýrslum og öðrum gögnum sem lögð hafa verið fram á fundum hópsins.

Bréfið var sent að beiðni fulltrúa Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Bjartrar framtíðar, þeirra Oddnýjar Harðardóttur, Bjarkeyjar Gunnarsdóttur og Brynhildar Pétursdóttur, á grundvelli 51. gr. þingskapa í kjölfar þess að formaður hagræðingarhópsins hafði upplýst á fundi nefndarinnar lokið störfum og að framhald málsins væri í höndum forsætisráðuneytisins.

Forsætisráðuneytið svaraði beiðni nefnarinnar á miðvikudaginn með þeim hætti að að hópurinn vinni að lokafrágangi tillagnanna og að þær verði birtar á vef ráðuneytisins 11. nóvember næstkomandi ásamt yfirliti yfir helstu gögn sem hagræðingarhópurinn studdist við í vinnu sinni.