Fjárlaganefnd Alþingis stefnir að því að afgreiða fjárlög fyrir árið 2012 úr nefndinni nú síðdegis, en fundur nefndarinnar hefst klukkan eitt í dag.

Kemur þetta fram á mbl.is, en að öllum líkindum verða greidd atkvæði um fjárlögin á Alþingi á á miðvikudaginn.

Þingflokkar stjórnarflokkanna hafa fundað í morgun um afgreiðslu fjárlaganna, en eitt helsta ágreiningsmálið hefur verið fjárveiting til fangelsismála.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar.

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður fjárlaganefndar.