Öll leyfi fyrir álver Norðuráls í Helguvík eru í höfn en það fékk úthlutað losunarheimildum 30. september sl.

Þær heimildir duga til vegna framleiðslu á 50.000 tonnum af áli árið 2010 og 150.000 tonnum árin 2011 og 2012.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ.

Fyrstu undirstöður að kerskála álvers voru steyptar 12. september sl. og hafa undirbúningsframkvæmdir við jarðvinnu, vegalagningu og aðra aðstöðusköpun á svæðinu staðið yfir frá því í mars á þessu ári.

Í tilkynningunni kemur fram að fyrir liggur að rekstur 1. áfanga hefst haustið 2010 en hraði næsta áfanga ræðst af vilja og getu orkufyrirtækja til að  útvega frekari orku.

„Norðuráli virðist ekkert að vanbúnaði en fyrirtækið hefur fyrir þó nokkru  tryggt fjármagn í alla framkvæmdina,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að áætlað er að haustið 2010  starfi um 300 manns hjá Norðuráli í Helguvík.

„Þegar álverið nær 250 þúsund tonna afköstum verður starfsmannafjöldi 400 manns og að auki skapast tengd störf í samfélaginu fyrir 6-700 manns til viðbótar,“ segir í tilkynningunni.

„Útflutningsverðmæti mun þá nálgast 80 milljarða kr. ári! og efnahagsáhrif framkvæmdanna eru talin vera á 3. hundrað milljarðar króna í fjárfestingu inn í landið“