Stjórn Félags atvinnurekenda (FA) hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna nýrrar fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar og lýsir vonbrigðum og furðu yfir þeim fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar að hækka tekjuskatt fyrirtækja á næsta ári.

„Að mati FA er í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar gengið alltof skammt í hagræðingu á gjaldahlið ríkisrekstrarins. Þess í stað eru lagðar auknar álögur á fyrirtækin í landinu til að fjármagna ósjálfbæra útþenslu ríkiskerfisins.“

FA segir að starfsmönnum ríkisins hafi fjölgað úr hófi fram á undanförnum árum og vísar þar í nýlega skýrslu Intellecon, sem unnin var fyrir félagið.

FA hvetur stjórnvöld til að ganga harðar fram í lækkun ríkisútgjalda og fækkun ríkisstarfsmanna. Til þess þurfi m.a. að breyta lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og gera þannig starfsmannahald ríkisins „sveigjanlegra og nútímalegra“.

Ætti frekar að lækka tryggingagjaldið

FA telur fremur ástæðu til að létta sköttum og álögum af fyrirtækjum, til dæmis með því að efna „marggefin fyrirheit“ um að tryggingagjald lækki til samræmis við það sem það var fyrir bankahrun.

Stjórn FA lýsir jafnframt vonbrigðum með að ekki skuli stafkrók að finna í fjármálaáætluninni um lækkun tolla til að stuðla að aukinni samkeppni, lægra matarverði og lækkandi verðbólgu.

„FA og viðsemjendur þess innan Alþýðusambandsins hafa engin viðbrögð fengið við þeim tillögum um lækkun tolla sem lagðar voru fyrir fjármálaráðherra og matvælaráðherra í byrjun febrúar. Stjórnvöld virðast í því efni kjósa að gæta þröngra sérhagsmuna fremur en að horfa á almannahag.“