Lánasjóður sveitarfélaga hefur fengið vottun á umgjörð félagsins í þeim tilgangi að gefa út græn skuldabréf (e. Green Bond Framework), Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum, sem er samstarfsaðili Lánasjóðsins við gerð umgjörðarinnar sem og sölu og útgáfu grænu skuldabréfanna.

„Það er mikilvægt fyrir Lánasjóðinn að geta tekið virkan þátt í vinnu sveitarfélaga í umhverfis- og loftslagsmálum. Lánasjóðurinn vill gera hvað hann getur til að styðja við markmið stjórnvalda í tengslum við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna,

„Tilgangur fyrirhugaðrar skuldabréfaútgáfu er að fjármagna verkefni sveitarfélaga sem stuðla að umhverfisvernd og sporna gegn loftslagsbreytingum í samræmi við umhverfisstefnu Lánasjóðsins,“ segir Óttar Guðjónsson framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga og bætir við að sjóðurinn hlakki til að taka næstu skref.

Verkefnin sem fjármögnuð verða með grænum skuldabréfum þurfa að uppfylla þau skilyrði sem koma fram í umgjörð Lánasjóðsins en hann byggir á alþjóðlegum viðmiðum (e.Green Bond Principles) sem International Capital Market Association (ICMA) hefur sett saman og byggja á eftirfarandi fjórum stoðum: (1) Ráðstöfun fjármuna, (2) ferli um mat og val á verkefnum, (3) stýringu fjármuna, (4) upplýsingagjöf

Dæmi um fjárfestingar sem gætu fallið undir kröfur umgjarðarinnar eru umhverfisvænar samgöngur, vistvænar byggingar, endurnýjanleg orka og orkunýtni, fráveitur og meðhöndlun aukaafurða (úrgangs).

„Fjármagnsmarkaðurinn gegnir mikilvægu hlutverki við að stuðla að útgáfu grænna skuldabréfa. Landsbankinn hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á ábyrgar fjárfestingar. Græn skuldabréf eru eignaflokkur sem fellur undir ábyrgar fjárfestingar og því hefur verið sérstaklega ánægjulegt að taka þátt í þessari vegferð með Lánasjóði sveitarfélaga,“ er haft eftir Hrefnu Ösp Sigfinnsdóttur, framkvæmdastjóra Markaða Landsbankans, í tilkynningunni.