Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt samruna Sparisjóðs vélstjóra, SPV og Sparisjóðs Hafnarfjarðar, SPH, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Stofnfjáreigendur beggja sjóðanna samþykktu samrunann fyrir réttri viku. Ragnar Z. Guðjónsson og Magnús Ægir Magnússon, sparisjóðsstjórar sameinaðs sparisjóðs, segja í tilkynningunni að við sameininguna verði til ?mjög öflugt fjármálafyrirtæki.?

?Heildareign sameinaðs sparisjóðs nemur 100 milljörðum króna og eigið fé er um 11 milljarðar króna,? segir Ragnar. Z. Guðjónsson.  ?Meira en 50.000 einstaklingar eiga í viðskiptum við sameinaðan sjóð og vel á þriðja þúsund fyrirtæki,? segir Magnús Ægir.

Sameinaður sparisjóður kynnir vörur sínar og þjónustu undir vörumerkjunum SPH, SPV og S24, auk vörumerkisins Sparisjóðurinn.

Sparisjóður vélstjóra, SPV, var stofnaður 11. nóvember 1961. Sparisjóður Hafnarfjarðar, SPH, var stofnaður 22. desember árið 1902 og S24, dótturfyrirtæki SPH, var sett á stofn þann 14. október 1999. Sameinaður sparisjóður starfrækir sjö útibú.