Í tengslum við kaup Exista hf. á 80,8% hlut í VÍS eignarhaldsfélagi hf, hefur Fjármálaeftirlitið veitt félaginu heimild til þess að fara með virka eignarhluti í Lýsingu hf. (100%), Vátryggingafélagi Íslands hf. (99,9%), Líftryggingafélagi Íslands hf. (100%), Verði Íslandstryggingu hf. (56,6%) og Íslenskri endurtrygginu hf. (29,3%), segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Framangreind heimild er veitt með vísan til laga nr. 60/1994, um vátryggingastarfsemi annars vegar og laga nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki hins vegar.