Lagastofnun Háskóla Íslands og Fjármálaeftirlitið hafa tekið upp samstarf í þeim tilgangi að efla rannsóknir á sviði fjármálaréttar eftir því sem fram kemur á heimasíðu eftirlitsins.

Samkvæmt samningnum hefur Lagastofnun ráðið Arnald Hjartarson, lögfræðing og LL.M., í fullt starf sérfræðings til að sinna rannsóknum í fjármálarétti en þar á meðal heyrir undir starfsumhverfi fjármálafyrirtækja og eftirlitsaðila.

Samningurinn kveður á um styrk til Lagastofnunar um tæpar átta milljónir króna á ári í tvö ár eða í heild um 16 milljónir á samningstímanum. Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, undirritaði samninginn af hálfu Fjármálaeftirlitsins en fyrir hönd háskólans þau Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs, og María Thejll, forstöðumaður Lagastofnunar.