Öll fjármálafyrirtæki sem hafa farið í þrot í kjölfar bankahrunsins eru og verða rannökuð, þar með taldið viðskiptabankar, fjárfestingabankar og sparisjóðir. Þetta vill FME taka fram vegna umræðu sem átt hefur sér stað undanfarið varðandi rannsóknir á fjármálafyrirtækjum.

Fjármálaeftirlitið hefur sent 54 mál til embættis sérstaks saksóknara, að því er kemur fram í tilkynningu á vef FME:

„Strax eftir fall stóru viðskiptabankanna þriggja voru óháðir sérfræðingar fengnir til að gera athugun á þeim. Rannsóknir Fjármálaeftirlitsins frá þeim tíma hafa meðal annars verið byggðar á þessum athugunum. Þá voru einnig fengnir óháðir sérfræðingar til að athuga starfsemi þeirra þriggja fjármálafyrirtækja sem næst urðu fyrir áfallinu, þ.e. Straums Burðaráss Fjárfestingarbanka hf., SPRON hf. og Sparisjóðabanka Íslands hf. Fjármálaeftirlitið tók síðar þá ákvörðun að öll fjármálafyrirtæki sem fara í slitameðferð eða endurskipulagningu skyldu rannsökuð af óháðum sérfræðingum. Athugun fer fram eða hefur farið fram á VBS fjárfestingarbanka hf., Byr sparisjóði, Sparisjóðnum í Keflavík, Askar Capital hf.og Avant hf.

Um fjölda mála er að ræða  og eru rannsóknir mislangt komnar. Fram til þessa dags hefur Fjármálaeftirlitið sent 54 mál til embættis sérstaks saksóknara og fleiri eru á leiðinni.“