Fjármálaeftirlitið vekur á heimasíðu sinni athygli á því að Evrópska eftirlitsstofnunin á verðbréfamarkaði (ESMA) og Evrópska eftirlitsstofnunin á bankamarkaði (EBA) hafa gefið út viðvörun til fjárfesta um viðskipti með CFD fjármálagerninga. Slíkir gerningar hafa verið markaðssettir hér á landi m.a. með auglýsingum á Facebook. Má sjá þær á vefsíðunni: http://www.plus500.is/ (Opnast í nýjum vafraglugga).

Skammstöfunin CFD stendur fyrir Contract for Difference eða samning um fjárhagslegan mismun. Um er að ræða afleiðusamning þar sem viðskiptavinurinn gerir samning sem dregur verð sitt af undirliggjandi fjármálagerningi, hrávöru, gjaldmiðlum eða öðru sem liggur til grundvallar samningsins. Viðskipti með CFD samninga eru skuldsett viðskipti þar sem viðskiptavinurinn leggur fram sem tryggingu lítinn hluta þeirrar upphæðar sem hann hefði þurft að reiða fram ef hann hefði átt bein viðskipti með undirliggjandi eign. Samið er um að viðskiptavinurinn fái greitt eða þurfi að reiða fram mismuninn sem er á samningsverði og því verði sem undirliggjandi eign er á þegar samningnum er lokað.

Evrópsku stofnanirnar tvær, sem vísað er til hér að framan, segja í tilkynningu sinni meðal annars að þær hafi áhyggjur af því að nú á tímum lágrar ávöxtunar sé verið að freista óreyndra fjárfesta innan Evrópusambandsins með flóknum fjármáafurðum sem þeir skilja kannski ekki fyllilega. Fjárfestingin geti á endanum kostað þá peninga sem þeir hafi ekki efni á að tapa.