Sænska viðskiptablaðið Affärsvärlden fjallaði í gær um samþjöppun á bankamarkaði á Norðurlöndunum og er talað um hugsanleg kaup finnska tryggingafélagsins Sampo á auknum hlut í stærsta fjármálafyrirtæki Norðurlandanna, Nordea.
Sampo á nú 2% hlut í Nordea, en Exista keypti nú nýverið 15% hlut í Sampo.
Affärsvärlden greinir einnig frá því að Straumur Burðarás hafi fjárfest í Nordea fyrir 3,8 milljarða íslenskra króna.
Haft er eftir Friðriki Jóhannssyni, forstjóra Straums, að Nordea sé áhugaverður fjárfestingakostur og að Straumur ætli sé frekari fjárfestingar á Norðurlöndunum og kaup þeirra í Nordea sé hluti af því.
Í samtali við Viðskiptablaðið sagði Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, talsmaður Straums að fjáfesting bankans í Nordea sé ekkert leyndarmál og greint hafi verið frá henni í ársuppgjöri bankans.
"Hlutur Straums í Nordea er 3,8 milljarðar íslenskra króna og er það 0,1% hlutdeild," sagði Jóhanna.