Bakkavör Group hefur verið fært á Athugunarlista, á grundvelli skilyrða Kauphallarinnar fyrir töku hlutabréfa til viðskipta, vegna umtalsverðrar óvissu varðandi félagið og verðmyndun fjármálagerninga þess.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni.

Samkvæmt tilkynningunni telur Kauphöllin hættu á ójafnræði meðal fjárfesta í kjölfar sjónvarpsviðtals við stjórnarformann félagsins.