Fjármálagerningar útgefnir af Hf. Eimskipafélagi Íslands hafa verið færðir á Athugunarlista Kauphallarinnar með vísan til tilkynningar frá útgefanda frá því í gær um fjárhagsstöðu félagsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni en ákvörðunin er tekin á grundvelli skilyrða Nordic Exchange fyrir töku hlutabréfa til viðskipta sökum óvissu um fjárhagsstöðu félagsins.