Lilja Ólafsdóttir, formaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins, segir að fjármálakerfið fyrir fall bankakerfisins hafi minnt á skammsýnan ungling sem prófaði allt án þess að hugsa um afleiðingarnar. Þannig hafi bankarnir hagað sér.

Lilja hélt erindi á ársfundi Fjármálaeftirlitsins í dag þar sem hún fór meðal annars yfir stefnu eftirlitsins.