Nú stefnir í að starfsemi Spron og Sparisjóðabankans flytjist til annarra fjármálastofnana. Með því má gera ráð fyrir að erfiðleikum á íslenskum fjármálamarkaði sé að ljúka.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem fjármálaráðherra hefur sent þingmönnum en þar segir einnig að í samræmi við reglur sem gefnar hafi verið út 17. desember sl. um framlag ríkissjóðs til sparisjóða hafi fjármálaráðuneytið þegar móttekið umsóknir frá Sparisjóði Norðfjarðar, Sparisjóði Keflavíkur, Sparisjóði Vestmannaeyja, Sparisjóði Svarfdæla, Sparisjóði Bolungarvíkur og Byr sparisjóði.

Reglur kveði á um að umsóknir fari til umsagnar hjá Fjármálaeftirlitinu og Seðlabanka Íslands. Stefnt sé að því að hraða afgreiðslu umsókna og verði haft að leiðarljósi að tryggðir verði sem fjölbreyttastir valkostir neytenda í fjármálaþjónustu, að fjármálaþjónusta verði í boði um land allt, að hagræðingu verði náð fram í rekstri sparisjóðanna og að samfélagshlutverk sparisjóðanna verði tryggt.

Í yfirlýsingu frá fjármálaráðherra segir ennfremur að þegar lokið verði úrvinnslu umsókna frá sparisjóðunum og afgreiðslu lána ríkissjóða til annarra fjármálafyrirtækja í tengslum við endurhverf viðskipti sé það sannfæring ríkisstjórnarinnar að ekki komi til frekari lokana íslenkra innlánsstofnana.