Í nýju frumvarpi um Icesave samkomulagið áréttar Ísland bindandi ábyrgð sína gagnvart þeim skuldbindingum Tryggingarsjóðs innstæðueigenda að greiða innstæðueigendum Icesave í Bretlandi og Hollandi tryggingu án þess að viðurkenna að fyrir hendi hafi verið lagaleg skuldbinding um að veita þann stuðning.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu en í kjölfar undirritunar samnings um samþykki og breytingar milli Íslands og Bretlands annars vegar og Íslands og Hollands hins vegar var frumvarp lagt fram á Alþingi í dag.

Fjármálaráðuneytið segir að þessi samningar um breytingar og frumvarpið eru lokaáfangar í framkvæmd Icesave-lánafyrirkomulagsins milli Íslands, Bretlands og Hollands.

Í frumvarpinu er fjármálaráðherra einnig falið að fylgjast með efnahagsstöðu Íslands og tilhögun lánasamninganna vegna Icesave með það í huga að tryggja snurðulausa framkvæmd þeirra og gera ráðstafanir vegna frekari viðræðna eftir því sem nauðsyn krefur.

„Aðilarnir eru einhuga um að vinna saman á næstu mánuðum og árum, en í því felst meðal annars að ræða að beiðni einhvers aðilanna um álitaefni sem upp kunna að koma og bregðast við þeim eftir atvikum,“ segir í tilkynningunni.

„Aðilarnir munu starfa saman að því að veita aðstoð við endurheimt þeirra eigna Landsbankans sem um ræðir.“

Þá kemur jafnframt fram að fjármálaráðherrar Íslands, Bretlands og Hollands viðurkenna að sá agi sem beita þarf í fjárlögum Íslands í kjölfar samþykktar Íslands á lánafyrirkomulagi vegna Icesave verður íslensku þjóðinni ekki auðveldur.

„Þeir lýsa yfir stuðningi við árangursríka endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í samræmi við þær ákvarðanir sem voru teknar í nóvember síðastliðnum á grundvelli viljayfirlýsingar Íslands,“ segir í tilkynningunni.

„Þeir líta svo á að lausn Icesave-málsins, ásamt fjárhagslegum stuðningi frá öðrum löndum Evrópu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, séu mikilvægt skref í þá átt að bæta verulega stöðu Íslands á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og aðgengi að þeim.“