Geir H. Haarde, fjármálaráðherra hefur í gær og í dag setið þrjá ráðherrafundi í Kaupmannahöfn. Í gær var haldinn fyrsti fundur ráðherraráðs Norræna fjárfestingarbankans eftir að Eistar, Lettar og Litháar gerðust aðilar að bankanum. Gerð var grein fyrir afkomu bankans 2004, sem var mjög góð, og framtíðarhorfum. Geir H. Haarde lætur af formennsku í ráðinu 1. júní og við tekur Bent Bentsen, efnahagsráðherra Dana.

Einnig var í gær haldinn árlegur fundur fjármálaráðherra
Eystrasaltsráðsins, þ.e. Norðurlanda, Eystrasaltslanda auk Þýskalands og
Póllands. Viðfangsefni þess fundar var m.a. umfjöllun um þau tækifæri
fyrir svæðið sem felast í stækkun Evrópusambandsins en Svíar hafa haft
frumkvæði að sérfræðingaskýrslu um það efni. Einnig gerði
fjármálaráðherra Póllands grein fyrir stöðu efnahagsmála þar í landi og
þeim breytingum sem aðild þeirra að ESB hefur haft í för með sér.

Á fundi norrænu fjármálaráðherranna, sem haldinn var í dag, voru til
umræðu hefðbundin samstarfsmálefni ráðherranna. Ítarlega var rætt um
stöðu og horfur í efnahagsmálum og skattabreytingar í löndunum. Á fundi
ráðherranna var formlega opnuð norræn vefsíða um skattamál en hún er
hluti af viðamiklu verkefni sem unnið hefur verið að á undanförnum árum
og snýr að því að brjóta niður hindranir í samskiptum borgaranna yfir
landamæri. Skattamál hafa verið talinn einn veigamesti þátturinn sem snýr
að almenningi þar sem hægt er að ná árangri í þessum efnum og eru bundnar
miklar vonir við vefsíðuna. Norræna vefsíðan um skattamál er
samstarfsverkefni ríkisskattstjóraembætta allra Norðurlandanna en öll
forritun hefur verið unnin af starfsmönnum hugbúnaðarsviðs RSK og síðan
er vistuð hér á landi.