Fjármálaráðuneytið hafnar orðrómi um yfirtöku á Icelandair í tilkynningu sem ráðuneytið hefur sent frá sér.

Í tilkynningur ráðuneytisins segir að orðrómur um að Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra telji að ríkið þurfi að koma að eða taka yfir rekstur flugfélagsins Icelandair að hluta til eða öllu leyti sé tilhæfulaus með öllu.

Í tilkynningunni segir að fjármálaráðherra hafi engar upplýsingar um annað en að rekstur flugfélagsins gangi eftir atvikum og miðað við aðstæður vel. Má halda því fram að félaginu hafi tekist vel til í afar erfiðu starfsumhverfi að undanförnu.

Þó erfiðleikar kunni að herja á einhverja í eigendahópi félagsins, eins og því miður mjög marga aðra, um þessar mundir, breytir það ekki því sem að ofan greinir um stöðu félagsins og dugmikla baráttu stjórnenda þess við erfiðar aðstæður.