Viðar Þorkelsson, fjármálastjóri afþreyinga- og fjölmiðlafyrirtækisins 365, hefur keypt í félaginu fyrir 12,25 milljónir króna.

Kaupin eru ekki tengd starfskjörum hans, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar, né heldur kaup- eða sölurétti í félaginu. Aftur á móti er 365 söluaðili bréfanna.

Kaupgengið er 2,45 krónur á hlut og um er að ræða 5.000.000 hluti.

Eftir viðskiptin á hann 5.411.220 hluti.