Stefán Hilmar Hilmarsson, fyrrverandi fjármálastjóri Baugs Group og náinn samstarfsmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, var úrskurðaður gjaldþrota af Héraðsdómi Reykjavíkur þann 9. júlí s.l.

Skiptafundur búsins hefur verið boðaður þann 13. október n.k.

Stefán starfar sem fjármálastjóri 365 fjölmiðlasamsteypunnar og heldur jafnframt utan um 3,8% af A-hlutabréfum í félaginu.