Eiríkur Finnur Greipsson, oddviti sjálfstæðismann í Ísafjarðarbæ.
Eiríkur Finnur Greipsson, oddviti sjálfstæðismann í Ísafjarðarbæ.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Eiríkur Finnur Greipsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Arctic Odda ehf. á Flateyri, sem keypti eignir þrotabús Eyrarodda ehf. á síðasta ári.

Þá kemur Eiríkur finnur einnig til með að starfa fyrir fiskeldisfyrirtækið dýrfisk ehf., sem er að hluta í eigu Arctic Odda.

Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa í hyggju að efla fiskvinnslu á Flateyri og auka silungseldi í Dýrafirði innan tveggja ára. Eiríkur Finnur er jafnframt formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar.