Teitur Samuelsen, fjármálastjóri Atlantic Petroleum hefur ákveðið að láta af störfum um næstu áramót.

Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins til Kauphallarinnar, en félagið er skráð í Kauphöllina hér á landi.

Fram kemur að Samuelsen hafi ákveðið að leita nýrra atvinnutækifæra. Þá sé hafið ráðningarferli í þeim tilgangi að fylla í stöðuna. Til að tryggja sem minnsta röskun hafi Samuelsen samþykkt að starfa þangað til áramóta og aðstoða til við að koma nýjum manni í stöðuna.