Ásta Friðriksdóttir, fjármálastjóri Fríhafnarinnar, hefur sagt upp störfum. Víkurfréttir greina frá þessu.

Ásta er annar fulltrúinn úr framkvæmdastjórn Fríhafnarinnar sem segir upp á skömmum tíma. Ásta Dís Óladóttir, sem var framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar, lét af störfum í byrjun mánaðarins.