Marel Food Systems hefur ráðið Erik Kaman sem fjármálastjóra (CFO) samstæðunnar. Hann tekur sæti í framkvæmdastjórn samstæðunnar og tekur til starfa í apríl næstkomandi. Fram að þeim tíma verður fjármálastjórn Marel Food Systems áfram í höndum Kristjáns Þorsteinssonar. Kristján, sem hefur gegnt því starfi sl. níu ár, mun taka við starfi framkvæmdastjóra fjármögnunar og áhættustýringar hjá félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel Food Systems til Kauphallarinnar.

Erik Kaman  hefur starfað hjá Stork síðastliðin 16 ár, nú síðast sem fjármálastjóri Stork Aerospace Industrie, en þar áður sem framkvæmdastjóri stefnumótunar og fjármála hjá móðurfélagi Stork samstæðunnar.