Fjármunaeign þjóðarbúsins nam 2.640 milljörðum króna árið 2003 og var tæplega 3,3 föld landsframleiðsla ársins. Hefur hún þá vaxið að raungildi um 22,5% frá árinu 1997. Með fjármunaeign er átt við uppsafnað en afskrifað verðmæti þeirra fjármuna sem orðið hafa til við fjármunamyndun í hvers konar atvinnustarfsemi á þjóðarbúinu.

Út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum Þjóðhagsreikningar og eru þar birtar tölur um fjármunaeign þjóðarbúsins og afskrift fjármunaeignar fyrir tímabilið 1997-2003.