Hlutabréf fjarskiptafyrirtækja hafa lækkað í viðskiptum dagsins.

Síminn hefur lækkað sem nemur 3,65% í viðskiptum sem nema 225 milljón króna. Hlutabréf í Fjarskipti (Vodafone) hafa lækkað  um 2,84% í viðskiptum dagsins, en veltan nemur 114 milljónum króna.

Vodafone birti ársreikning eftir lokun markaða í gær tekjur tekjur jukust um 4% og hagnaður um 18%. Síminn birti ársreikning fyrir opnun markaða í morgun, en hagnaður dróst saman milli ára.