Fjarskiptasjóður og Síminn undirrituðu í dag samning um uppbyggingu háhraðanets um allt land.

Með samningum er  öllum landsmönnum tryggt háhraðanet fyrir árslok 2010.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu en um er að ræða tæplega 1800 heimili og verða þau fyrstu tengd innan mánaðar, samkvæmt tilkynningunni.

Samningurinn er til fimm ára og tekur gildi 1. mars 2009. Samningsfjárhæðin er 606 milljónir króna og Í samningnum felst að Fjarskiptasjóður veitir Símanum fjárstyrk til uppbyggingar á háhraðanetkerfi og háhraðanetþjónustu sem nær til staða sem ekki hafa aðgang að slíkri þjónustu.

Þjónustan mun ná til heimila þar sem einn eða fleiri einstaklingar eru með lögheimili og hafa þar jafnframt heilsársbúsetu og einnig til húsnæðis þar sem lögaðili er með atvinnustarfsemi allt árið.

Í tilkynningunni kemur fram að vinna við uppbygginguna hefst strax og geta fyrstu heimilin nýtt sér netþjónustu Símans við lok marsmánar. Áætlað er að tengingu þessara tæplega 1800 staða ljúki við lok næsta árs.

Þá kemur fram að þau heimili sem þiggja þjónustuna munu hafa kost á 2Mb/s tengingu en það er margfaldur hraði miðað við þann hraða sem nú er í boði á þessum stöðum. Samhliða þessari uppbyggingu mun Síminn byggja upp 3G farsímasamband á þessum svæðum.

Upphaflegt umfang verkefnisins var um 1.100 staðir. Umfangið hefur aukist um tæplega 700 staði þar sem markaðsáform nokkurra aðila gengu ekki eftir. Auglýst var eftir áformum markaðsaðila á þessum viðbótarstöðum sem reyndust engin vera. Samningurinn nær því í dag til allra staða á landinu sem, að uppfylltum búsetuskilyrðum, eiga ekki kost á háhraðanettengingu á markaðslegum forsendum.