Fjársöfnun meðal fyrirtækja í landinu er hafin vegna eldgossins í Grímsvötnum og fer hún vel af stað. Söfnunin fer fram í samráði við Samtök atvinnulífsins en myndaður verður sjóður til að veita bændum og þeirri starfsemi er þeir standa fyrir á þessu svæði,  fjárhagslegan stuðning eftir því sem söfnunarfé hrekkur til og hægt er að bæta með fjárstyrkjum.

Fjögurra manna verkefnisstjórn hefur verið valin til að hafa umsjón með söfnuninni, skipuleggja hana og móta reglur. Verkefnisstjórn skipa Guðni Ágústsson, fv. landbúnaðarráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í mjókuriðnaði (SAM), Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson, form. Landssambands sauðfjárbænda,  Sigurður Loftsson, form. Landssambands kúabænda og Hugrún Hannesdóttir, frá Ferðaþjónustu bænda.

Verkefnisstjórn söfnunarinnar og Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til þess að bregðast vel við þessu brýna verkefni.

Eftirtalin fyrirtæki hafa þegar lagt fram fé í söfnunina:

Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki,

Samherji hf., Akureyri

Ísfélag Vestmannaeyjaeyja hf., Vestmannaeyjum

Skinney-Þinganes hf., Höfn

N1 hf., Reykjavík

KEA svf. Akureyri

Vinnslustöðin hf., Vestmannaeyjum

Mjólkursamsalan, Reykjavík

Alcoa - Fjarðarál, Reyðarfirði

Kjarnafæði hf., Akureyri

Þorbjörn hf, Grindavík

Norðlenska hf., Akureyri

Fóðurblandan hf., Reykjavík

Brim hf., Reykjavík

Sláturfélag Suðurlands, svf. Selfossi

SAH-afurðir hf., Blönduósi

Samkaup, Keflavík

Kaupás (Krónan/ Kjarval)

Bónus hf. Reykjavík.

Olís hf. Reykjavík