Origo hefur ráðið fjóra nýja liðsmenn í markaðsteymi fyrirtækisins. Í tilkynningu segir að ráðningarnar séu liður í stefnumótun Origo að auka áherslu á markaðsmálin og gera vöruframboðið hnitmiðaðra.

Lydía Dögg Egilsdóttir og Birta Aradóttir hafa verið ráðnar sem sérfræðingar í markaðsmálum inn á markaðsdeild Origo. Þar starfa fyrir Auður Karitas Þórhallsdóttir vefstjóri, Kristín Björnsdóttir sérfræðingur og Lóa Bára Magnúsdóttir markaðsstjóri.

Birta Aradóttir kemur frá Notendalausnum Origo þar sem hún var vörustjóri Lenovo. Hún hefur bakgrunn í markaðssamskiptum, birtingum og vörumerkjastjórnun. Áður starfaði hún sem alþjóðlegur vörumerkjastjóri hjá CO-RO í Kaupmannahöfn, vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni og birtingastjóri á Hvíta húsinu auglýsingastofu. Birta er með M.Sc. í Corporate Communications frá University of Amsterdam.

Lydía Dögg Egilsdóttir er nýr sérfræðingur í markaðsdeild Origo og hefur reynslu í verkefnastjórnun, markaðssamskiptum og hönnun. Hún starfaði áður sem verkefnastjóri markaðsmála hjá Gróðurhúsinu í Hveragerði - hótel, mathöll og verslanir og þar áður hjá Gray Line Iceland. Lydía er með BA í Business and Design: Sustainable Communication frá Copenhagen School of Design and Technology.

Auk þess hafa markaðsmálin verið færð nær tekjusviðunum með það markmið að auka tenginguna við sölustarfið. Þar hefur verið bætt við tveimur stöðugildum í markaðsmálum að auki.

Anna Gréta Oddsdóttir hefur verið ráðin sem sérfræðingur í markaðsmálum fyrir Notendalausnir. Anna Gréta kemur frá auglýsingastofunni Ketchup Creative þar sem hún sinnti fyrst starfi texta- og hugmyndasmiðar og varð síðar rekstrarstjóri. Anna Gréta er með BSC í sálfræði frá Háskóla Íslands og mastersgráðu í markaðsfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

Magnús Máni Hafþórsson hefur störf í hugbúnaðrlausnum Origo en starfaði áður hjá Sprotalausnum Origo. Magnús er að leggja lokahönd á mastersnám í viðskiptafræðum. Hann hefur fjölbreyttan bakgrunn í markaðsmálum en sérhæfir sig í gagnadrifinni markaðsetningu og stafrænni stefnu.

Lóa Bára Magnúsdóttir, markaðsstjóri Origo:

„Við höfum fengið til liðs við okkur mjög öfluga einstaklinga sem munu gera okkur kleift að taka markaðsstarfið á hærra stig. Þau hafa hver sína sérhæfingu og mynda teymi sem getur náð vel utan um verkefnin framundan. Við ætlum að breyta leiknum, vinna mun markvissara, neytendamiðaðra og gagnadrifnara markaðsstarf til að tryggja árangur hjá Origo. Við sækjum fram með það að leiðarljósi að betri tækni bæti lífið.“