Hagnaður Haga á rekstrarárinu 2013/2014 nam 3.953 milljónum króna eða 5,2% af veltu. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 5.862 milljónum króna. Vörusala rekstrarársins nam 76.158 milljónum króna.

Í afkomutilkynningu kemur fram að áframhaldandi niðurgreiðsla vaxtaberandi skulda er áformuð og hefur m.a. verið tekin ákvörðun um greiðslu 1.500 milljóna króna inn á lán félagsins í lok maí.