Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni dróst saman á milli vikna. Þannig nam veltan í vikunni 1.288 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.584 milljónir króna veltu í vikunni á undan og dróst því saman um 19% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta var er nú 1.445 milljónir króna og hefur lækkað fjórar vikur í röð um rúmar 660 milljónir króna. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta ekki verið lægri frá því í um miðjan júlí á seinasta ári.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú aukist um 38% á milli ára.

Tólf vikna meðalvelta dróst saman um 36 milljónir króna í vikunni og nemur nú 1.744 milljónum króna. Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.592 milljónir króna á viku og hefur aukist um 17% á milli ára.

Í síðustu viku:

Alls var 47 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 50 samninga í vikunni á undan. Alls var 56 samningum þinglýst að meðaltali á viku á síðasta ári.

Meðalupphæð á hvern samning nam 27,4 milljónum króna í vikunni, samanborið við 31 milljón króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 28,2 milljónir króna.

Meðaltal síðustu 12 vikna er jafnframt 27,4 milljónir króna.