Fjöldi þeirra sem nú eru skráðir atvinnulausir er 16.033 samkvæmt vef vinnumálastofnunar en atvinnuleysi hefur aukist nokkuð hratt.

Atvinnuleysi mældist 6,6% að meðaltali í janúar en gróflega má áætla að atvinnuleysi sé nú um 10,1%.

Þó er rétt að hafa í huga að það kann ekki að vera meðaltal yfir febrúarmánuð þar sem fjöldi atvinnulausra hefur aukist jafn og þétt allan mánuðinn. Gera má ráð fyrir að atvinnuleysi í febrúar mælist á milli 8 – 8,5% að meðaltali samkvæmt útreikningum Viðskiptablaðsins.

Atvinnuleysi mælist sem fyrr, þ.e. miðað við síðustu mánuði, mest á höfuðborgarsvæðinu þar sem 10.535 eru skráðir atvinnulausir eða 68,7% allra þeirra sem skráðir eru atvinnulausir.

Þar á eftir eru 1.773 einstaklingar skráðir atvinnulausir á Suðurnesjum eða 11,1% þeirra sem skráðir eru atvinnulausir.

Minnsta atvinnuleysið mælist á Vestfjörðum þar sem aðeins 96 eru skráðir atvinnulausir eða 0,6% þeirra sem skráðir eru atvinnulausir á landinu.