Heildarfjöldi erlendra gesta árið 2010 var tæplega 495 þúsund árið 2010 og er um að ræða 0,2% aukningu frá 2009 en þá voru erlendir gestir 494 þúsund talsins. Langflestir fóru um Keflavíkurflugvöll, eða 93%. Um 4% fóru um flugvelli í Reykjavík, á Akureyri og æa Egilstöðum. Um 3% komu með Norrænu, samkvæmt tilkynningu frá Ferðamálastofa.

„Þar fyrir utan eru farþegar með skemmtiferðaskipum en tæplega 74 þúsund erlendir gestir komu til landsins með skemmtiferðaskipum árið 2010, 2% fleiri en á árinu 2009 þegar þeir voru tæplega 72 þúsund talsins,“ segir í frétt Ferðamálastofu.

Fleiri Íslendingar út

Kemur fram að brottförum Íslendinga fjögalði um 15,4% á milli ára en tæplega 294 þúsund Íslendingar ferðuðust til útlanda á árinu 2010 samanborið við tæplerga 255 þúsund árið 2009.

Brottförum fækkar í Leifsstöð

Samkvæmt brottfarartalningum Ferðamálastofu í Leifsstöð fóru 459.252 erlendir gestir frá landinu um flugstöðina á árinu 2010, sem er fækkun um 5.300 gesti frá árinu áður eða 1,1% milli ára. Erlendum gestum fjölgaði milli ára í febrúarmánuði, mars, júlí, október og desember, svipaður fjöldi kom í júní og nóvember árið 2010 og árið áður en erlendum gestum fækkaði  hins vegar milli ára í janúarmánuði, apríl, maí, ágúst og september. Allar brottfarir erlendra gesta um Leifsstöð eru inni í þessum talningum, þ.m.t. brottfarir erlends vinnuafls.“