„Það er alltaf eitthvað nýtt á hverju ári,“ segir Jón Gunnar Bergs, eigandi Partýbúðarinnar, um hvaða búningur slær mest í gegn hjá börnunum í dag. Mikil törn hefur verið í Partýbúðinni liðna daga. „Í fyrra var Mario1 í Super Mario Bros mjög vinsæll en oft eru karaktertýpur vinsælar. Í ár eru það persónur úr teiknimyndunum Monster High og Frozen,“ segir Jón Gunnar.

Hann segir að krakkar búi búningana líka oft til sjálf og það sé skemmtilegt að fylgjast með afrakstrinum þegar þau mæta í búðina á öskudegi að syngja fyrir nammi. „Við seljum fylgihluti fyrir búninga og þá geta þau búið eitthvað til alveg sjálf. Eða setja eitthvað saman eins og til dæmis prinsessukjól með sverði eða eitthvað svoleiðis,“ segir Jón Gunnar.