Heildarfjöldi greiddra gistinátta í nóvember jókst um 4,4% samanborið við nóvember 2018. Gistinætur á hótelum jukust um 5,3% á meðan 2,3% samdráttur var á gistiheimilum. Á öðrum tegundum gististaða, líkt og farfuglaheimilum, íbúðagistingu og svo framvegis, jukust gistinætur um 16,8% en drógust saman um 8,4% á stöðum sem miðla í gistingu í gegnum Airbnb og svipaðar síður. Greint er frá þessu á vef Hagstofunnar .

Í frétt Hagstofunnar segir að greiddar gistinætur ferðamanna á öllum gististöðum hafi verið um 572.000 í nóvember síðastliðnum, en hafi verið um 547.800 í sama mánuði í fyrra. Þá hafi gistinætur á hótelum og gistiheimilum verið 381.800, þar af 323.000 á hótelum. Gistinætur í íbúðagistingu, farfuglaheimilum o.þ.h. hafi verið um 114.200 og um 76.000 á stöðum sem miðla gistingu í gegnum vefsíður á borð við Airbnb.

5% aukning í gistinóttum á hótelum

„Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 323.000, sem er 5% aukning frá sama mánuði árið áður. Aukning var í öllum landshlutum en á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 3,6% og 8,6% á landsbyggðinni. Um 65% allra hótelgistinátta voru á höfuðborgarsvæðinu eða 211.300.

Á tólf mánaða tímabili, frá desember 2018 til nóvember 2019, var heildarfjöldi gistinátta á hótelum um 4.432.900, sem er 1% samdráttur miðað við sama tímabil árið áður,“ segir í frétt Hagstofunnar.

Þá segir að 87% gistinátta á hótelum hafi verið skráðar á erlenda ferðamenn, eða 281.700. Þar hafi Bandaríkjamenn verið með flestar gistinætur, eða 78.500, þar á eftir Bretar (72.800) og Kínverjar (19.000) en gistinætur Íslendinga voru 41.300.

Loks segir að herbergjanýting á hótelum í nóvember 2019 hafi staðið í stað á milli ára og verið 57,4%. Á sama tíma hafi framboð gistirýmis aukist um 6,6% mælt í fjölda herbergja. Nýtingin í nóvember var best á höfuðborgarsvæðinu, eða 74,4%.