Gistinætur á hótelum hér á landi í júní voru 156.200, sem er sambærilegur fjöldi og var í júní 2007.

Gistinóttum fjölgaði umtalsvert á Austurlandi, úr 6.800 í 8.500, eða tæp 26%. Gistinóttum fjölgaði einnig um rúm 7% á Suðurlandi, úr 18.300 í 19.600.

Gistinóttum á öðrum landsvæðum fækkaði lítillega frá því í júní 2007. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum um tæp 3%, úr 101.900 í 99.300. Á Norðurlandi fækkaði gistinóttum um 2%, úr 14.900 í 14.600, og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fækkaði gistinóttum einnig um 2% milli ára, úr 14.400 í 14.200.

Gistinætur á hótelum fyrstu sex mánuði ársins voru 585.000 en voru 569.000 á sama tímabili árið 2007 og fjölgaði þeim því um 3% á þessu ári.

Fjölgun gistinátta fyrstu sex mánuði ársins nær eingöngu til Íslendinga, 11%. Gistinætur útlendinga standa í stað á milli ára.

Inni í þessum tölum eru eingöngu gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Gistinætur gististaða sem eingöngu eru opnir yfir sumartímann teljast því ekki með.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.