Í febrúar 2010 voru 82 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 88 fyrirtæki í febrúar 2009, sem jafngildir rúmlega 7% fækkun milli ára samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í heild- og smásöluverslun og viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu tvo mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 185 sem er tæplega 13% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 161 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Nýskráningum fækkað um 36%

Í febrúar 2010 voru skráð 148 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 236 einkahlutafélög í febrúar 2009, sem jafngildir rúmlega 37% fækkun milli ára samkvæmt samantekt Hagstofu Íslands.  Einnig voru skráð 64 samlagsfélög (slf) í febrúar. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er því 305 fyrstu tvo mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um tæplega 36% frá sama tímabili árið 2009 þegar 459 ný einkahlutafélög voru skráð.

Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum en flest samlagsfélög voru skráð í heilbrigðis- og félagsþjónustu.