Samtals voru 165 kaupsamningar þinglýstir á höfuðborgarsvæðinu frá 1. júní til og með 7. júní 2018. 130 af þessum samningum voru um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 4 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Þessi fjöldi þinglýsinga er rétt yfir meðaltal síðastliðinna 12 vikna, en 151 kaupsamningur hefur verið þinglýstur að meðaltali á síðastliðnum 12 vikum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá Íslands .

Heildarveltan var alls rúmlega 8,2 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern samning voru 49,7 milljónir króna. Það er rétt undir meðaltal meðalupphæðar á hvern kaupsamning síðastliðinna 12 vikna sem nemur 50,3 milljónum króna. Heildarvelta síðastliðinni 12 vikna hefur að meðaltali verið rúmlega 7,6 milljarðar króna og því er heildarvelta áðurnefnds tímabils aðeins hærra en meðaltalið.