Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 31. maí til 6. júní var 131. Þar af voru 100 um eignir í fjölbýli, 21 samningur um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði, samkvæmt gögnum frá Þjóðskrá Íslands. Heildarveltan var 4.054 milljónir og meðalupphæð var 30,9 milljónir.

Á Suðurnesjum voru 9 kaupsamningar gerðir, Akureyri voru þeir 12 og á Árborgarsvæðinu var 6 kaupsamningum þinglýst á sama tíma.