Alls var 481 leigusamning þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í febrúar sl., sem þýðir tæplega 17% fækkun samninga á milli mánaða. Á síðustu 9 mánuðum hefur fjöldi leigusamninga aðeins tvisvar farið undir 500 á höfuðborgarsvæðinu.

Þá var 687 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í febrúar sem þýðir fækkun samninga um rúm 22% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hafði leitað töluvert niður á við frá því í september sl. en þá var slegið met í fjölda leigusamninga þegar 1.553 samningum var þinglýst á landinu öllu, þarf af 868 á höfuðborgarsvæðinu. Eftir að hafa leitað niður á við í fjóra mánuði tók fjöldi samninga kipp upp á við í janúar sl. en sem fyrr segir fækkar þeim aftur nú.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur seinna um haustið.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 687 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í febrúar sl., samanborið við 884 samninga í janúar. Samningum fækkar einnig um 7,7% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 62 samningum. Þá var 58 samningum þinglýst á Norðurlandi, 42 samningum á Suðurlandi og 30 samningum á Vesturlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 5 samningum var þinglýst þar í febrúar. Þá var 9 samningum þinglýst á Austurlandi.