Alls var 435 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í apríl á þessu ári,  sem er 17,3 fækkun samninga frá því í mars. Fjöldi leigusamninga hafði staðið í stað á milli mánaða á höfuðborgarsvæðinu í mars en í janúar sl. tók fjöldi samninga nokkurn kipp og fjölgaði um tæp 40% sem þá var mesta hækkun á milli mánaða frá því í janúar í fyrra.

Alls var 456 samningum þinglýst á sama tíma í fyrra þannig að fækkunin á milli ára nemur því 4,6%.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu náði hámarki í september sl. þegar tæplega 840 samningum var þinglýst.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár. Þar sést hvernig leigusamningum fjölgaði jafnt og þétt fram á síðasta haust en síðan í september í fyrra hefur þeim farið heldur fækkandi þrátt fyrir fyrrnefnda fjölgun í janúar sl.

Ef horft er á landið í heild þá var 625 leigusamningum þinglýst í apríl sl., samanborið við 790 samninga í mars, sem þýðir 20,9% fækkun samninga á milli mánaða en 4,6% fækkun á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í apríl, eða 76 samningum. Þá var  50 samningum þinglýst á Norðurlandi og 37 samningum á Suðurlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 2 samningum var þinglýst þar í apríl. Þá hefur aðeins 18 samningum verið þinglýst á Vestfjörðum frá áramótum.

Leigusamningar á landsvísu náðu jafnframt hámarki í september sl. þegar um 1.520 samningum var þinglýst. Þar af var um 280 samningum þinglýst á Norðurlandi.