Alls var 333 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í desember sl., sem er um 28% fækkun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þannig fækkað um rúm 19% á milli ára.

Þá var 512 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í desember sem þýðir fækkun samninga um rúm 24% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Samningum hefur þannig fækkað verulega frá því í ágúst og september. Þá hafa leigusamningar ekki verið færri síðan í júní 2008, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsvísu.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur þegar líður á veturinn. Fækkun samninga nú er þó mun meiri en verið hefur síðustu ár.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 512 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í desember sl., samanborið við 677 samninga í nóvember. Samningum í desember fækkar um tæp 14% á milli ára á landsvísu.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 57 samningum. Þá var 39 samningum þinglýst á Suðurlandi, 45 samningum á Norðurlandi og 31 samning á Vesturlandi.

Þá var3 samningum þinglýst á Vestfjörðum og 4 samningum þinglýst á Austurlandi.

Á síðasta ári var um 9..950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010.