Alls var 868 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í september sl., sem er rúmlega 13% fjölgun samninga frá því í ágúst þegar um 766 samningum var þinglýst.

Þá fjölgaði leigusamningum jafnframt á landinu öllu um tæp 4% á milli mánaða í september samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hefur leitað upp á við í haust eftir mikla fækkun í apríl sl. Þá hefur aldrei jafn mörgum leigusamningum verið þinglýst á þessu ári.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár. Þar sést hvernig leigusamningum fjölgaði jafnt og þétt fram á síðasta haust en frá september í fyrra fór þeim heldur fækkandi fram á sl. vor.

Ef horft er á landið í heild þá var 1.553 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í september sl., samanborið við 1.245 samninga í ágúst, sem þýðir tæp 25% aukning á milli mánaða en 2% aukning á milli ára. Þá hefur jafn mörgum samningum ekki verið þinglýst á landinu öllu frá því í september í fyrra.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Norðurlandi í september, eða 288 samningum. Þá var 175 samningum þinglýst á Suðurnesjum, 125 samningum á Vesturlandi og 74 samningum á Suðurlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 10 samningum var þinglýst þar í september. Þá hefur aðeins 4500 leigusamningum verið þinglýst á Vestfjörðum frá áramótum.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið, þar sem 5.376 samningum hefur verið þinglýst það sem af er ári, hefur flestum samningum verið þinglýst á Suðurnesjum, eða 932 samningum. Þá hefur 908 leigusamningum verið þinglýst á Norðurlandi þar sem af er þessu ári.