Alls var 486 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í mars sl., sem er 1% fjölgun samninga á milli mánaða en í febrúar sl.  hafði leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkað um tæp 17% á milli mánaða.

Þá var 704 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í mars sem þýðir fjölgun samninga um 2,5 á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu hafði leitað töluvert niður á við frá því í september sl. en þá var slegið met í fjölda leigusamninga þegar 1.553 samningum var þinglýst á landinu öllu, þarf af 868 á höfuðborgarsvæðinu. Eftir að hafa leitað niður á við í fjóra mánuði tók fjöldi samninga kipp upp á við í janúar sl. en þeim hefur þó fækkað aftur.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur seinna um haustið.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 704 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í mars sl., samanborið við 687 samninga í febrúar. Samningum í mars fækkar um tæp 11% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 85 samningum. Þá var 39 samningum þinglýst á Norðurlandi, 52 samningum á Suðurlandi og 29 samningum á Vesturlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 4 samningum var þinglýst þar í mars. Þá var 9 samningum þinglýst á Austurlandi.