Alls var 350 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í apríl sl., sem er um 27% fækkun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þá fækkað um tæp 28% á milli ára.

Þá var 501 leigusamning þinglýst á landinu öllu í apríl sem þýðir fækkun samninga um rúm 15% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Jafn fáum samningum hefur ekki verið þinglýst síðan í júní 2008, en það komst þó nálægt því þegar 512 samningum var þinglýst í janúar sl.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár. Þar sést hvernig þinglýstum leigusamningum fækkaði snarlega á seinni hluta síðasta árs en hefur síðan þá sveiflast nokkuð.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 501 leigusamning þinglýst á landinu öllu í apríl sl., samanborið við 478 samninga í mars. Samningum í apríl fækkar um tæp 18% á milli ára á landsvísu.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á suðurnesjum eða 63 samningum. Þá var 40 samningum þinglýst á Norðurlandi, 18 samningum á Vesturlandi og 24 samningum á Suðurlandi.

Loks var 2 samningum þinglýst á Vestfjörðum og 4 samningum þinglýst á Austurlandi.

Á síðasta ári var um 9..950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010. Það sem af er þessu ári hefur um 2.700 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af 1.770 samningum á höfuðborgarsvæðinu.