Fjöldi lesenda danska fríblaðsins Nyhedsavisen, sem er í eigu Baugs, hefur aukist um 18% og er nú 233 þúsund, segir í frétt danska dagblaðsins Jyllands Posten. Blaðið vísar til upplýsinga frá Nyhedsavisen.

24timer er mest lesna fríblað Danmerkur, með 420 þúsund lesendur, en lesendur fríblaðsins Dato eru 205 þúsnud talsins.