Símtöl í kerfum Símans á jóladag voru tæplega 12.000 talsins en voru rúmlega 5000 á sama tíma árið 2009. Fólk talaði einnig mun lengur en heildarlengd símtala rúmlega þrefaldaðist á milli ára og voru vel yfir 140 þúsund mínútur. Síminn bauð viðskiptavinum sínum að hringja til útlanda án endurgjalds úr heimasíma á jóladag.

Í tilkynningu um miklar símnotkun á jóladag segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans: „Viðskiptavinir Símans kunnu greinilega að meta þessa jólagjöf og gaman að sjá að fólk bæði hringdi í fleiri og talaði lengur. Með því að bjóða viðskiptavinum okkar að hringja til útlanda endurgjaldslaust viljum við hvetja fjölskyldur og vini til þess að heyrast um jólin og eiga afslöppuð samskipti án þess að hafa áhyggjur af kostnaði. Þar sem svo vel tókst til munum við örugglega gera þetta aftur um næstu jól.”