easyJet ætlar að fjölga flugferðum frá Keflavíkurflugvelli til London um næstu áramót. Félagið flýgur nú fjóra daga vikunnar en mun fljúga í sex daga nema á laugardögum um áramótin. Brottförum fjölgar jafnframt úr átta í ellefu á þrjá áfangastaði, samkvæmt upplýsingum frá félaginu. Eftir því sem næst verður komist er verið að skoða meiri fjölgun. Engin ákvörðun liggur þó fyrir um það ennþá.

Flug easyJet til Edinborgar frá Keflavík verður áfram tvo daga í viku allt árið á mánudögum og fimmtudögum.