Gistinætur á hótelum á Suðurnesjum í nóvember síðastliðnum voru 18.953 miðað við 8.301 í nóvember í fyrra og fjölgaði því um 128% milli ára. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Á sama tíma fjölgaði gistinóttum á landinu öllu um 44%. Gistinætur erlendra gesta voru 90% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 48% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 17%.

Í samantekt Hagstofunnar er eingöngu átt við gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið.